Eftir stúdentspróf frá Menntaskólanum að Laugarvatni 1957 hóf hann lögfræðinám við Háskóla Íslands. Á þriðja vetri hvarf hann þaðan, að sögn vegna leiðinda en líka vegna þess, eins og hann sagði mér undir það síðasta, að þá um sumarið hafði honum verið falið sem laganema hjá bæjarfógeta að halda uppboð á heimili skuldugrar fjölskyldu. Það var verk sem hann langaði ekki til að þurfa að endurtaka. Hann fann sér því starfsvettvang í sjávarútvegi, fyrst sem framleiðslustjóri hraðfrystihúss Vinnslustöðvarinnar, síðan sem framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar í aldarfjórðung og loks sem forstöðumaður veiðieftirlits Fiskistofu. Það hefur líklega ekki alltaf verið tekið út með sældinni að reka eitt stærsta frystihús landsins og útgerð á tímum óðaverðbólgu, gengisfárs, stöðugra kjaraátaka, mannskaðaveðra og þegar engar voru tölvurnar til að einfalda samskipti við erlenda markaði. En björtu hliðarnar voru líka margar og ómetanlegar. Þannig kynntist hann lífsförunaut sínum í vinnslusal Fiskiðjunnar og eina minningin sem hann ritaði hjá sér og vildi greinilega ekki að gleymdist var um tvo Japani, þá Uemura og Use Itoh, sem komnir voru yfir hálfan hnöttinn árið 1966 til að skoða ufsa- og þorskhrogn til kaups. Pabbi tók tvímenningana að sér á meðan á dvöl þeirra stóð í Vestmannaeyjum og af virðingu við mikilvægi minningarinnar þá vitna ég beint í hans ritaða orð: „Reyndust þeir bæði ræðnir á sinni bjöguðu ensku og um leið forvitnir um flesta hluti. … Meðal þess sem þeir sögðu mér frá var af fremur smáum fiski af laxaætt sem nefndur var shishamo. Fiskur þessi var orðinn mjög ofveiddur og því munaðarvara á markaðinum. … Barst þá tal okkar að íslensku loðnunni sem hér veiddist á hverjum vetri og stöðugt væru auknar veiðar á en allur aflinn færi í bræðslu í mjölverksmiðjur. … Segja má að þeir hafi orðið ein augu og eyru við fréttirnar um fisk þennan og heimtuðu án tafar að berja hann augum. Loðnuvertíð var lokið og bræðslu hætt en við fórum samt niður í þrær fiskimjölsverksmiðjunnar og skriðum þar undir færibönd og snigla og fundum nokkrar úldnar og hálfþornaðar loðnudruslur. Leist þeim loðnan mjög áþekk hinum eina sanna shishamo. … Varð það að ráði að við myndum frysta tvö tonn af loðnu á næstu vertíð og senda til Japan. … Þessi tvö tonn … urðu sá mjói vísir að innflutningi Japana á loðnu frá Íslandi, Noregi, Sovétríkjunum og Nýfundnalandi.“ Seinna tók hann svo þátt í árangursríkum tilraunum til að frysta loðnuhrogn fyrir Japansmarkað með „sérstökum dælum, tönkum og tromlum“ og árið 1974 var hann sendur á vegum Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna til Japan til að setja á stofn og stjórna sölufyrirtækinu Iceland Seaproducts Company í Tókýó. Hann sagði mér að markmiðið hefði verið sett hátt - að bola Norðmönnum og Rússum út af Japansmarkaði svo að Íslendingar gætu setið einir að honum. En loðnan er duttlungafull skepna og á næstu vertíð fannst hún hvergi við Íslandsstrendur. Það fór því aldrei svo að Íslendingar leggðu undir sig markaðinn en engu að síður hefur loðnan reynst lengst af næst verðmætasta útflutningsvara sjávarútvegsins á eftir þorski.
Í janúar 1973 tók að gjósa í Eyjum og hafi pabbi verið vakinn og sofinn yfir hagsmunum Vestmannaeyja fyrir þann tíma þá skil ég ekki hvaða hamur rann á hann meðan á gosinu stóð. Hann var yngsti bæjarfulltrúinn á þessum tíma, 37 ára, og barnlaus og því kom í hans hlut að fara hvergi og gæta hagsmuna bæjar, íbúa og atvinnulífs á staðnum. Hann varð fulltrúi Vestmannaeyjanefndarinnar svokölluðu í Eyjum á meðan hún starfaði fyrstu vikur gossins og síðan varð hann annar tveggja framkvæmdastjóra Viðlagasjóðs í Vestmannaeyjum sem hafði það hlutverk að bjarga eignum og síðan hreinsa bæinn að gosi loknu og hefja uppbyggingu. Snemma í gosinu var ákveðið að flytja öll tæki úr öllum frystihúsunum, í stærstu verstöð landsins, og var pabba falið að hafa umsjón með þessum flutningum. Mánuði eftir að gosið hófst var haft eftir honum í blöðum að búið væri að flytja allar vélar úr Fiskiðjunni en hann bætti við að Eyjamenn yrðu snöggir að setja vélarnar upp aftur þegar hjól atvinnulífsins í Eyjum færu að snúast á ný. Um hálfu ári síðar voru svo sagðar af því fréttir að Dettifoss hefði komið með vélar og tæki til Eyja og að endurreisnarstarfið væri hafið. Þrátt fyrir að hafa horft á eigið heimili fara undir hraun og frystihúsið sem hann stýrði að hluta þá brast honum aldrei kraftur. Enda sagði hann í viðtali þegar tuttugu ár voru liðin frá gosinu að í minningunni væri honum efst í huga sá samhugur sem ríkti í Eyjum um að bjarga því sem bjargað varð og síðan byggja upp strax á eftir: „Það var aldrei uppgjafartónn í þeim mönnum sem voru í Eyjum á þessum tíma. Menn voru alltaf ákveðnir í að byggja Eyjarnar upp aftur og leyfðu sér ekki að hugsa öðruvísi.“ Björgunar- og endurreisnarstarf í Vestmannaeyjum var samfélagslegt átak og þar er auðvitað hjákátlegt að skipa fólki í virðingarröð, en það kitlaði engu að síður hégómagirndina þegar ég las viðtal við Ella rauða, pólitískan mótherja, sem sagði í viðtali 1983, árið sem pabbi varð undir í pólitískum slag: „Sú þrautseigja sem sýnd var við verðmætabjörgun og uppbyggingu var líka einstæð. En ekki get ég talið Eyjabúa langminnuga þeim Eyjamönnum sem mest og best komu við sögu í gosógnunum, að öllum ólöstuðum,“ og taldi upp pabba ásamt Magnúsi Magnússyni sem varð þá einnig undir á hinum pólitíska vígvelli og bætti við: „Líklega eru þeir Magnús og Guðmundur ekki nógu ósvífnir í að bíta frá sér í slag stjórnmálanna, - of mikil prúðmenni.“
Og ætli maður komist hjá því að fjalla aðeins um pabba á pólitíska vígvellinum. Pabbi var kominn af jafnaðarmönnum í karllegg en föðurafi hans var Guðmundur á Goðalandi, trésmíðameistari, bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins í Vestmannaeyjum og „einn af traustustu og vinsælustu borgurum þessa bæjar,“ eins og sagði í Tímariti iðnaðarmanna 1955. En leið pabba lá engu að síður í Sjálfstæðisflokkinn og líklega hefur amma ráðið þar miklu um, en ég hef heyrt því fleygt að hún hafi alið pabba og bræður hans upp í trú á þrennt: Kirkjuna, íþróttafélagið Þór og Sjálfstæðisflokkinn. Þegar pabbi hafði svo sýnt fram á það í gosinu og í kjölfar þess að hann stóð undir þeirri ábyrgð sem örlögin hlóðu á hann þá virðast hafa vaknað hugmyndir um að hann gæti orðið þingmannsefni sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum í kosningunum 1978. En pabbi átti það sameiginlegt með föður sínum og afa að vera lítillátur. Þannig sagði um afa í minningarorðum að hann hefði verið dulur maður, rólegur og yfirvegaður og um Guðmund frá Goðalandi var ritað að hann hefði ekki verið gefinn fyrir að trana sér fram. Þess vegna segir í umfjöllun fjölmiðla í aðdraganda kosninga að pabbi væri sá einstaklingur sem auðveldast yrði að ná samstöðu um en að sjálfur kærði hann sig líklega ekki um að verða þingmaður. Engu að síður fór svo að pabbi var kjörinn á þing og sat þar til 1983, á tímabili þegar Sjálfstæðisflokkurinn var klofinn og þorri þingflokksins áhrifalaus í minnihluta. Dagblaðið birti slúðurmola fyrir kosningarnar 1979 þar sem sagði að pabba leiddist á Alþingi og að hann kynni betur við sig í stússi fyrir fiskvinnslu. Um líkurnar á því að hann veldist aftur á lista flokksins sagði að hann væri vissulega prúður maður og þægilegur en að litríkur væri hann ekki. Þá um haustið var skrifað honum til stuðnings: „Þar fór traustur og heilsteyptur maður, sem vann að heill og viðgangi hvers máls af sannfæringu og dugnaði, án hleypidóma og að yfirvegðum máli. Drengur góður og hreinskiptinn.“ En síðan var bætt við að vissulega væri hann hlédrægur „svo að sumum stuðningsmönnum hans finnst nóg um.“ Pabba var því þannig gerður að það var eiginlega óhjákvæmilegt að ferill hans í vinsældakapphlaupi stjórnmálanna yrði stuttur. Það kemur ekki á óvart að á þessum stutta þingferli hafi mest borið á þátttöku hans í umræðum um sjávarútveg. Þar talaði hann m.a. fyrir veiðitakmörkunum og skynsamri nýtingu auðlindarinnar sem byggði á vísindalegum forsendum og nokkrum sinnum varaði hann við ofveiði viðkvæmra fiskistofna. Hann varaði einnig við því að Íslendingar mótmæltu alþjóðlegu hvalveiðibanni vegna tjóns sem það gæti skapað Íslendingum á erlendum fiskmörkuðum og þá lagði hann til að útvegsfræði yrði kennd við Háskóla Íslands. Ég leyfi mér því að halda fram að á þingi hafi pabbi reynst hygginn framfaramaður.
Hér hefur pabba verið minnst út frá heimildum um starfsævina og sögum sem hann sagði sjálfur um æsku og uppeldi. En sjálfur get ég borið vitni um að pabba tókst þrátt fyrir öll ábyrgðarstörfin að vera traustur eiginmaður, faðir og afi. Hann sagði manni frá Tyrkjaráninu eins og hann hefði upplifað það sjálfur, reyndi að ganga með lofthræddan drenginn á fjöll, ók með mig heilu kvöldin í leit að lundapysjum, hleypti mér í ljósritunarvélina á skrifstofunni þegar við gáfum út fyrsta bekkjarblaðið og útvegaði mér fyrstu alvöru sumarvinnuna svo eitthvað sé nefnt. Og eftir að þessum samviskusama dugnaðarforki var gert að hætta störfum sjötugum þá gerði hann afahlutverkið að fullu starfi þar sem elskan var tjáð í samveru, skutli og magafylli. En afsakið, nú er ég líklega orðinn of langorður um pabba og full mærðarlegur fyrir hans smekk. En hann á það sannarlega skilið.