10. sep. 2013

Hálendið - hjarta landsins

Hálendið - hjarta landsins er yfirskrift verkefnis sem Landvernd hleypti af stokkunum í Þjórsárverum í liðinni vikur. Markmið verkefnisins er að vekja athygli á fyrirhuguðum framkvæmdum á hálendi Íslands og gefa fólki kost á að taka undir kröfu Landverndar um að hálendinu verði hlíft.

Vefur verkefnisins hefur slóðina hjartalandsins.is og á ensku heartoficeland.org.

Þrátt fyrir yfirlýsta stefnu stjórnvalda um verndun víðerna hefur stöðugt verið gengið á þessi verðmæti. Enn eru uppi áætlanir um virkjanir, uppbyggða vegi og raflínur á hálendinu, til dæmis í grennd við Þjórsárver, við Hágöngur og Hagavatn, í Skaftá, Skjálfandafljóti og Jökulsánum í Skagafirði og á Kili og Sprengisandi. Að mati Landverndar er afar mikilvægt að stöðva þessa þróun og vernda sérstöðu hálendisins sem felst í lítt röskuðum svæðum, stórbrotnum andstæðum í landslagi og gróðurfari og einstökum möguleikum til náttúruupplifunar í óbyggðum.

Hjartað var valið sem tákn verkefnisins vegna þess að útlínur hálendisins mynda hjarta í grófum dráttum. Auk þess hefur Guðmundur Páll Ólafsson fjallað um hálendið sem hjarta landsins, t.d. á baráttufundi í Háskólabíói 28. nóvember 1998: ,,Á meðan er okkar sæng upp reidd: Að verja hálendið, sjálft hjarta landsins, með ráð og dáð, sem sverð þess og skjöldur. Og annaðhvort verjum við það núna eða aldrei. Í húfi er æran, þín og mín; heiður allra Íslendinga."